Bjartsýni

 

Við höfum alla burði til að vinna okkur út úr þeim vandamálum sem hrjá íslenskt þjóðfélag í dag.

Fordómar og Bakkabræður Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Laugardagur, 15. Ágúst 2009 10:51
Fordómar Fordómar eru, samkvæmt orðanna hljóðan, það að dæma aðra fyrirfram. Með fordómum er alhæft um hegðun fólks eða hugarfar, oftast á neikvæðan hátt. Þeir sem halda fordómum á lofti eiga sér það sameiginlega markmið að fjötra minnihlutahópa í stöðu sinni.

Mikið ber á þessu fyrirbrigði í þjóðfélaginu um þessar mundir. Mest ber á fullyrðingum um að þessi eða hinn hafi hvorki vit né getu til þess að tjá skoðanir sínar um það álitaefni sem til umfjöllunar er hverju sinni. Þekkustu fulltrúar þessa hóps í íslensku þjóðlífi eru án alls vafa þeir ágætu bræður frá Bakka í Svarfaðardal, Gísli, Eiríkur og Helgi. Sögur af heimskupörum Bakkabræðra hafa lifað lengi með þjóðinni.

Þeir bræður bjuggu eftir föður sinn á Bakka og erfðu ásamt öðru merina Brúnku eftir karlinn. Brúnka var þeim afar kær. Einu sinni kom hvassviðri mikið og urðu þeir þá hræddir um að Brúnka mundi fjúka báru því á hana og hlóðu upp með henni svo miklu af grjóti sem á henni tolldi; eftir það fauk hún hvorki né stóð upp framar.

Af þessari frammistöðu Bakkabræðra má læra tvennt. Í fyrsta lagi skulum við forðast að ofvernda það sem okkur þykir vænt um og í annan stað getum við hlegið af háttalaginu. Hvorutveggja er bráðnauðsynlegt okkur íslendingum í dag.

Jóhannes úr Kötlum orti brag um þá bræður. Þar er m.a. að finna þessar vísur:

Hnittin fannst mér heimska þeirra,

- hún var sjálfsagt oft til baga,

en hefði vitið verið meira

væri kannski engin saga.

Betur en viskan djúp og döpur

dæmi flónsins oft er þegið.

Gott er að eiga Bakkabræður

bara til að geta hlegið.

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 17. Ágúst 2009 07:09