Á 19. öld var skráð sögn um hvernig byggð hófst í Grímsey. Þar segir að lengi hafi engum verið leyft að setjast þar að vegna þess að eyjan hafi þótt svo gagnsöm til eggjatekju og annarra hlunninda.
Svo hafi hópur Þingeyinga sest þar að í leyfisleysi og byggt sér bæi. Þegar vermenn komu þangað úr Eyjafirði vörnuðu eyjarskeggjar þeim landgöngu og felldu þá alla í bardaga.
Við skulum vona að Vestmannaeyingar láti sér nægja að Grímseyingar selji þeim lundann um ókomin ár.





