Frumkvæði

Treystum á framtak, útsjónarsemi og dug hins almenna manns.

Þegi þú Björn VG! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Mánudagur, 20. Júlí 2009 09:27

Það er með ólíkindum hvernig VG gengur fram þessa dagana. Þingflokkur þeirra tekur aðra afstöðu en flokkurinn gaf út fyrir síðustu kosningar og styður nú aðild Íslands að ESB. Formaður VG ber ábyrgð á því sem hann kallaði "glæsilega" niðurstöðu í Icesave samningum Svavars Gestssonar og félaga.

Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið, þrátt fyrir allt sem sagt hefur verið og gert þá ber núverandi ríkisstjórn ábyrgð á niðurstöðu samninga um Icesave. Sama hversu mjög þau reyna að kenna pólitískum andstæðingum um þá gerðu þeir ekki þá þrælasamninga sem  nú liggja fyrir við Breta og Hollendinga. Undan  samningsniðurstöðunni geta félagarnir Svavar og Steingrímur J. ekki vikist.


Undarlegra er að hlýða á fyrirmæli og ekki síður horfa upp á háttalag þingmanns VG í hutastarfi, Björns Vals Gíslasonar. Hann var kjörinn á þing þann 25 apríl sl. og hefur á þeim skamma tíma sem liðinn er tekið sér tvisvar frí frá þingstörfum og kallað inn varamann. Á þessu stutta sumarþingi verður varaformaður fjárlaganefndar væntanlega um einn mánuð í fríi frá störfum Alþingis.

Vonandi mun hann nýta tímann til þess að lesa að nýju þau loforð sem flokkurinn gaf kjósendum fyrir kosningar. Það hlýtur vissulega að vera erfitt og reynir öruggleg á þolrifin að þurfa að kyngja svo óþægilegum verkum sem ESB og Icesave eru og geta ekki lengur kennt öðrum um niðurstöðu og úrvinnslu mála.  Nú bera VG menn ábyrgð - undan því geta þeir ekki vikist.

Þrátt fyrir að taka ekki þátt í störfum Alþingis, er þessi sami Björn Valur Gíslason með yfirýsingar um að hann telji að hægt verði að afgreiða frumvarpið um Icesave úr nefnd á þriðjudag eða miðvikudag í næstu viku. Hann segir jafnframt að samningnum verði ekki breytt. Hann er líkast til eini þingmaðurinn sem sagt hefur þennan samning góðan fyrir Íslendinga.

Björn Valur Gíslason er í þessu máli ekki bara venjulegur þingmaður Vinstri Grænna. Hann tók að sér varaformennsku í fjárlaganefnd Alþingis þegar stærsta einstaka skuldbinding sem rætt hefur verið um að leggja á íslenska skattgreiðendur er til umfjöllunar og afgreiðslu. Sá þingmaður sem kýs að taka sér frí frá störfum Alþingis við þessar kringumstæður ætti að sjá sóma sinn í því að þegja um málið sem hann flýr, í stað þess að takast á við það.

Síðast uppfært: Mánudagur, 20. Júlí 2009 09:46