Sjálfstæðisflokkurinn
Forræði í eigin málum, víðsýn og þjóðleg umbótastefna á grunni einstaklings- og atvinnufrelsis.
|
| Dalai Lama og Hallgrímur Pétursson |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Mánudagur, 01. Júní 2009 21:24 |
Við Þorsteinn fórum í Hallrímskirkju í dag kl. 15.00. Tilefnið varð að sækja samtrúarlega friðarstund í Hallgrímskirkju í tilefni komu Dalai Lama til Íslands. Mikill fjöldi sótti þessa hátíðlegu stund og komust færri að en vildu. Merkilegt að líta þenna leiðtoga tíbeta augum og var hann ekkert nema auðmýktin að sjá frammi fyrir þeim fjölda fólks sem þarna var samankominn. Frámunalega lélegt það háttalag ríkisstjórnarinnar að sjá ekki sóma sinn í því að taka á móti þessum manni sem er tákngerfingur baráttu smáþjóða fyrir sjálfstæði sínu. Við feðgarnir sátum undir eftirfarandi dagskrárliðum:Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands ávarpaði samkomuna, þá las séra Sigurður Sigurðsson vígslubiskup sálm, Eygló jónsdóttir, las úr helgiritum búddista, Imam Salman Tamimi las úr Kóraninum, Hilmar Örn Hilmarsson allherjargoði flutti erindi úr Hávamálum, Hólmfríður Sigurðardóttir las úr ritum Bahaía, séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir las úr Biblíunni og þá ávarpaði Dalai Lama samkomuna. Milli atriða sögn svo Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Ákelssonar. Það var við hæfi að ganga, eftir athöfnina, um garð Einars Jónssonar myndhöggvara og njóta sköpunargáfu hans í dásamlegu veðri. Með færslunni fylgir mynd af Þorsteini við höggmynd Einars sem hann tileinkaði séra Hallgrími Péturssyni. Skáldskapur Hallgríms hefur á liðnum öldum hefur veitt íslenskri þjóð leiðsögn á erfiðum tímum með sama hætti og Dalai Lama Tíbesku þjóðinni. Frekari "fréttir" af heimsókn Dalai Lama til Íslands má svo lesa hér... |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 02. Júní 2009 07:09 |