Sjálfstæðisflokkurinn

 

Forræði í eigin málum, víðsýn og þjóðleg umbótastefna á grunni einstaklings- og atvinnufrelsis.

 

Styrkur og lífsfylling Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Samfélag við aðra manneskju gefur lífinu gildi og er í raun það sem ætti að vera meginverkefni okkar í jarðvistinni.

Í því írafári öllu sem nú hefur geisað um nokkurt skeið hef ég þurft starfa minna vegna að vera meira bundinn við starfsstöðina við Austurvöll en ég hefði kosið. Það er ekki það að þetta sé leiðinlegur vinnustaður heldur hefur þetta högg sem fjármálakerfi landsins haft þær afleiðingar að á höfuðborgarsvæðinu ríkir þannig ástand að um margt minnir á lítið byggðarlag sem tapað hefur lífsafkomu sinni. Miklar tilfinningar brjótast út og í umræðu manna á milli og í fjölmiðlum eru dregnar upp dökkar myndir og svartar.

 

Þetta er að mínu mati ástæðulaus ótti því ég hef enga trú á því að himinn og jörð farist þó ég eða aðrir Íslendingar tapi peningum – lífið snýst í mínum huga um allt önnur gildi. Og þó svo einhverjir fjármunir hverfi þá getur það ekki verið og á ekki að vera upphaf og endir alls. Þannig var hugsunin hins vegar orðin í því gríðarlega kapphlaupi í neyslu sem þjóðin var lent í og þá sérstaklega þarna úti á landi þar sem höfuðborgarsvæðið hefur byggst upp. Því er áfallið óhjákvæmilega mikið og tilfinningar brjótast út þegar blaðran springur og það rennur upp fyrir fólki hversu lítið það er í tröllvöxnum heimi.

Við þessar aðstæður verður mér alltaf hugsað heim og til uppruna míns og ég kemst alltaf að þeirri sömu og ánægjulegu niðurstöðu að í smæðinni felist styrkur íslenskrar þjóðar.

Ég er Dalvíkingur, og öll mín ætt mín nær frá svæðinu frá Fljótum til Þingeyjarsýslna. Ég er því um leið Eyfirðingur, Norðlendingur og Íslendingur og í þennan brunn sæki ég styrk minn og lífsfyllingu.

Við sem njótum þeirrar gæfu að hafa fengið að lifa og alast upp við þau lífsgæði sem þessi fallegi hluti landsins býður fólki sínu – eigum alla kosti til góðrar ævi. Grundvallaratriði er þó að við séum trú uppruna okkar, virðum hvert annað og stöndum þétt að baki þeim málum sem treysta búsetuskilyrði og til framfara horfa.