What are standard bank loans Payday loans How large is the loan
 

Kristján Þór

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Gegn hagsmunum Íslands

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Ríkisstjórnin hefur heitið því að standa vörð um hagsmuni Íslands í máli Eftirlitsstofnunar EFTA á hendur íslenska ríkinu vegna ábyrgðar á Icesave reikningum Landsbanka Íslands hf. Ráðherrar hafa sérstaklega gengið fram fyrir skjöldu til að taka af allan vafa um að ítrustu vörnum verði haldið uppi í málinu. Grundvallaratriði í þeim vörnum er að Icesave reikningarnir hafi EKKI verið á forræði eða ábyrgð íslenskra stjórnvalda og að íslenskir skattgreiðendur séu því ekki ábyrgir fyrir þeim.

Tvískinnungur

Á sama tíma stendur sama ríkisstjórnin á Alþingi fyrir því að sækja sakamál á hendur þáverandi forsætisráðherra fyrir 

„...að hafa ekki fylgt því eftir og fullvissað sig um að unnið væri með virkum hætti að flutningi Icesave-reikninga Landsbanka Íslands hf. i Bretlandi yfir í dótturfélag og síðan leitað leiða til að stuðla að framgangi þessa með virkri aðkomu ríkisvaldsins,“ eins og segir í ákærulið 1.5 í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde.

Þótt flestir lögspekingar séu sammála um að umræddur ákæruliður muni aldrei leiða til sakfellingar í Landsdómsmálinu þá er ekki hægt að horfa framhjá því að með því að Alþingi staðhæfi – ég endurtek STAÐHÆFI – að ábyrgð á þessum reikningum hafi legið hjá íslenskum stjórnvöldum þá er verið að færa Eftirlitsstofnun EFTA, gagnaðila íslenska ríkisins í dómsmáli, afar mikilvægt vopn í hendur.

Gott er að hafa tungur tvær...

Hvernig ætlar íslenska ríkið að svara því í máli ESA gegn íslenska ríkinu að sjálft Alþingi telji að ábyrgðin á Icesave-reikningunum liggi hjá íslenskum stjórnvöldum? Væntanlega mun þetta auðvelda mjög málssókn ESA þegar fyrir liggur að íslenska ríkið krefst refsingar á hendur fyrrum forsætisráðherra á þeim grundvelli að Icesave reikningarnir hafi verið á hans ábyrgð og þar með íslenska ríkisins.

Og við þá sem segja að það verði þá bara sigur fyrir Ísland ef Geir H. Haarde verði sýknaður er rétt að taka eftirfarandi skýrt fram: Refsikrafa í sakamáli er ekki sett fram nema að ákærandi telji meiri líkur en minni á því að sakfelling náist fram. Bara það að setja fram refsikröfu fer gegn hagsmunum íslenska ríkisins í ESA-málinu og þar með gegn hagsmunum allra Íslendinga.

Ríkisstjórnin er augljóslega tvísaga í þessu gríðarlega hagsmunamáli okkar Íslendinga. “Gott er að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri,” segir máltækið. Slíkt athæfi er þó ekki til eftirbreytni og ekki til þess fallið að auka trúverðugleika þess sem í hlut á.