What are standard bank loans Payday loans How large is the loan
 

Kristján Þór

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Margfaldur tvískinnungur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Það var einkennilegt, svo ekki sé meira sagt, í ljósi digurmæla nokkurra þingmanna NA kjördæmis og stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar um ranga forgangsröðun í fjárlögum að verða vitni að afstöðu þeirra við afgreiðslu fjárlaga ársins 2011.  Allir greiddu þeir atkvæði á móti því að draga til baka niðurskurð fjárveitinga til FSA að upphæð 27 mkr., heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á Húsavík um 52 mkr., 19 mkr. til SÁÁ og fleira mætti nefna. 

Þess í stað skipuðu þeir framar í forgangsröð að setja 40 mkr. í 3 nýja aðstoðarmenn ráðherra, 150 mkr. til að byrja endurnýjun á tölvukerfi Tollstjóra, 30 mkr. til Óbyggðanefndar ( sem ekki er starfandi) o.s.frv.

Svo heldur þessi leikur áfram og næsti leiksoppur þessara þingmanna er arfavitlaus samgönguáætlun sem lögð var fram Alþingi rétt fyrir lok haustsþingsins. Ég undrast ekki litla hrifningu þingmanna á þessu plaggi. Það er hins vegar umhugsunarefni að sömu þingmenn reyna að slá ryki í augu almennings með þeim hætti að  vera ekki sjálfum sér samkvæmir í því sem þeir segja og gera.  Fimmtudaginn 7. desember 2011 greiddi þingmaður Samfylkingarinnar og stjórnarliðinn Kristján Möller atkvæði MEÐ fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Íslands fyrir árið 2012. Þar er gert ráð fyrir ákveðinni fjárhæð til samgönguframkvæmda. 11 dögum síðar, sunnudaginn 18. desember 2011,tilkynnir þingmaðurinn Kristján Möller af miklum vígamóð í fjölmiðlum að hann ætlaði ekki að styðja áætlun ríkisstjórnarinnar um áherslur í samgöngumálum landsins næstu árin þar sem ekki sé gert ráð fyrir Norðfjarðargöngum í plagginu. Það lá ljóst fyrir þann 7 desember þegar fjárlög næsta árs voru samþykkt með 31 atkvæðum stjórnarliða.