Bjartsýni
Við höfum alla burði til að vinna okkur út úr þeim vandamálum sem hrjá íslenskt þjóðfélag í dag. |
| VG eða VK? - Villikettir á Alþingi. |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Mánudagur, 29. Mars 2010 22:19 |
|
Líkt og alþjóð veit þá eiga kettir sér níu líf. Á skömmum starfstíma ríkisstjórnar VG og Samfylkingar hefur gengið hratt á líf villikattanna (VK?) í VG. Formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra virðist telja óhætt að ganga enn nær lífsmarki og lífslíkum ríkisstjórnar sinnar en orðið er. Í fyrrahaust fór fram í þjóðfélaginu mikil og heit umræða um smölun villifjár í Tálkna, en nú fer fram mikil umræða um smölun alþingiskatta sem hreiðrað hafa um sig innan vébanda VG. Aðaláhugamenn um smölun fjár og katta hafa verið einstakir og ákveðnir þingmenn Samfylkingarinnar með formann sinn í stafni. Fylgisnatar stefnu Samfylkingarinnar hafa verið þekktir fyrir allt annað en ást á íslenskum landsbúnaði. Töluverð samsvörun virðist hins vegar vera í umræðu Samfylkingarinnar um villiféð og kettina. Til upprifjunar leyfi ég mér að nefna eftirfarandi dæmi úr bloggi þingmanns Samfylkingar sem skildi ekki af hverju villiféð í Tálkna var ekki látið óáreitt. „Þarna lögðu menn líf og limi í hættu til þess að ná niður úr klettum og klungrum nokkrum ljónstyggum skjátum, sem augljóslega hafa hafst bærilega við þarna í fjallinu . Það er ekki vogunarinnar virði að ná niður 19 kindum sem enginn á - og vafasöm dýravernd að hrekja það með hundum fram af björgum,“ sagði þingmaðurinn að lokum. Fróðlegt verður að sjá hvort Samfylkingin nái að smala villiköttunum í VG í dilkinn sinn; og þá væntanlega til að þétta raðirnar! Ekki verður síður forvitnilegt að fylgjast með því hvort geltið í formanni Samfylkingarinnar á flokksráðsfundi um síðustu helgi hreki villikettina á Alþingi fyrir björg. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 29. Mars 2010 22:25 |