|
Úr Stjórnarsáttmála VG og Samfylkingar, 10. maí 2009: »Þessi ríkisstjórn mun ekki velta vandanum yfir á þá verst settu í samfélaginu, né leggja byrðarnar á börnin okkar með því að skjóta vandanum á frest. Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi.« Fjármálaráðherra hefur játað að hann sé orðinn þreyttur á kjaftæði um að ríkisstjórnin uppfylli ekki loforð sín.
Ákall þjóðarinnar um úrbætur er að mati ráðherrans marklaust tal. Skoðanasystkin Steingríms í þessum efnum eru örugglega enn færri en þau 1,8% þjóðarinnar sem greiddu atkvæði með samningum hans um Icesave. Hafa ber í huga að: - BSRB segir: »Margar fjölskyldur standa nú ráðþrota frammi fyrir sífellt hækkandi afborgunum af lánum og sjá ekki fyrir endann á fjárhagsvandræðum sínum. Þau úrræði sem nú eru í boði af hálfu stjórnvalda henta einungis hluta heimila. Stjórnvöld verða að grípa til markvissra aðgerða til að taka á vanda heimilanna - styrkja kaupmátt launa og stuðla jafnframt að sem víðtækastri sátt í samfélaginu.«
- Samtök iðnaðarins segja: »Þessa kyrrstöðu verður einfaldlega að rjúfa. Hækkun skatthlutfalla á fallandi skattstofna dýpka kreppuna og minnka líkur á endurreisn efnahagslífsins.«
- Samtök atvinnulífsins segja: »Þolinmæði fólks og fyrirtækja er á þrotum. Grípa verður til aðgerða í atvinnumálum.«
- ASÍ segir: »Skýr krafa er uppi um meira réttlæti í lausnum á skuldavanda heimilanna, krafa er um bráðaaðgerðir í atvinnumálum. Við verðum að lifa af skammtímann til að njóta þeirra gæða sem kunna að verða í framtíðinni.«
- Einstakir stjórnarþingmenn segja: »Við setjum skilyrði fyrir stuðningi okkar við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.«
Hvað veldur því að ríkisstjórnin bregst ekki við þessum áköllum? »Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði« segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Fullkomin uppgjöf blasir við. Það er úrræðalaus maður og ekki til varðstöðu fallinn sem þannig talar. Þreyttur maður leggur ekki eyrun við því sem við hann er sagt. Þreyttur maður er sjálfum sér og öðrum til ama. Þreyttur maður gerir sjálfum sér og öðrum best með því að víkja, og snúa sér að einhverju öðru... |