Nægjusemi

 

Í aldanna rás hafa Íslendingar lifað af því sem landið gefur af sér og hafa aldrei getað treyst á erlendar auðsuppsprettur til lífsviðurværis. Tími glimmersins er liðinn.

Lystisnekkjur og þjóðarskútan Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Miðvikudagur, 10. Mars 2010 11:16
Hallin á ríkissjóði árið 2010 verður um 100 þúsund milljónir króna. Á næsta ári þarf að skera niður ríkisútgjöld um 50 þúsund milljónir króna. Þá verður tekist á um forgangsröðun verkefna. Í fyrradag, 8/3, mælti umhverfisráðherra fyrir lagafrumvörpum á sviði skipulags- og byggingarmála. Þar er gert ráð fyrir nýrri ríkisstofnun, Byggingastofnun. Þar eiga að starfa 29 ríkisstarfsmenn. Í gær, 9/3, mælir menntamálaráðherra fyrir lögum um fjölmiðla. Þar er gert ráð fyrir nýrri ríkisstofnun, Fjölmiðlastofu. Þar eiga að starfa 4 ríkisstarfsmenn.
Engar fjárheimildir eru fyrir þessum áformum í fjárlögum. Samtals má ætla að árlegur kostnaður vegna þessara tveggja nýju stofnana nemi hátt í 250 milljónum króna. Stefna hefur verið sett. Ríkisstjórnin vill sigla á lystisnekkju meðan heilbrigðisþjónustu, menntastofnunum, öryrkjum og ellilífeyrisþegum og skuldsettum heimilum og fyrirtækjum landsins er ætlað að erfiða við róður á hriplekri þjóðarskútunni. Hvers vegna í ósköpunum er ekki fremur hlúð að því sem fyrir er og hugað að fólki sem vart hefur efni á brýnustu nauðsynjum áður en nýjum lystisnekkjum er ýtt úr vör? Þess er krafist að ríkisstjórnin leggist á árar með þjóðinni.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 10. Mars 2010 11:21