Verðmæti

Fólkið í landinu, orka í fallvötnum og iðrum jarðar, fiskurinn í sjónum – náttúran.

Hverjir mega taka þátt í atvinnurekstri? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 09. Mars 2010 07:12
Meginatriði endurreisnar atvinnurekstrar landsins er að þau fyrirtæki sem eru rekstrarhæf geti fjármagnað starfsemi sína. Líta verður framhjá því hvort Jón eða séra Jón eigi eða hafi átt fyrirtækið. Líta verður framhjá því hvort Jón eða Gunna hafi grætt eða tapað peningum. Líta verður framhjá því hvort Pétur eða Páll hafi stundað viðskipti hér heima eða erlendis. Þetta ágæta fólk vill hætta fjármunum sínum og verja starfskröftum sínum til þess að halda úti atvinnurekstri. Það á að geta notið sanngjarnrar og hlutlægrar afgreiðslu íslenskra fjármálafyrirtækja. Þar á öllum að vera gert jafnhátt undir höfði. Geðþótti, kunningsskapur og pólitísk hrossakaup eru ekki góðir mælikvarðar til þess brúks. Dómstóll götunnar á því síður að úrskurða um hæfi einstaklinga til atvinnurekstrar. 
Ísland þarf á öllu sínu bestu fólki að halda. Einstaklingar sem brugðist hafa trausti almennings eru ekki gjaldgengir í þann hóp – fyrr en þeir hafa endurheimt traustið.
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 09. Mars 2010 08:52