Sparnaður

 

Íslendingar hafa á síðustu árum myndað yfirdrátt í gleðibankanum og nú er komið að því að fara að leggja inn. Það næst ekki nema með aðhaldi og sparnaði.

Hin margklofna tunga Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Mánudagur, 08. Mars 2010 06:19
Tungan hefur í aldanna rás verið hið beittasta vopn þeirra sem helga sig stjórnmálum. Þar hefur t.d. legið styrkur Seingríms J Sigfússonar. Það er hins vegar með tunguna líkt og byssuna að þegar hlaupið spyrngur fer allt á versta veg. Þannig er nú komið fyrir fjármálaráðherra landsins að tunga hans er margklofin. Þegar menn verða margsaga fjarar traustið hratt út. Glæsilegur samningur er orðinn að ömurlegum gjörningi. Í tvígang hefur Steingrímur undirritað samninga við erlend stjórnvöld sem hann hefur ekki getað staðið við. Þjóð hans lýsti svo á laugardaginn algeru frati á samningsgerð og framgöngu hans og nú vefst honum margklofin tunga um tönn og háls.
Í öngum sínum miklar hann viðfangsefni sín og vonast til þess að allir sem á hlýða fyllist meðaumkun. Ömurlegasta útspil hans fram til þessa í tunguleikfiminni var þegar hann spurði erlenda fjölmiðlamenn hvort þeir hafi orðið varir við einhvern hér á landi sem vildi standa í sporum hans!
Vík burt Þistill.