|
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar birtist sú stefna sem ríkisstjórnarflokkarnir ætla að framfylgja.
Fjárlagafrumvarp VG og Samfylkingarinnar fyrir árið 2010 ber með sér að þessir flokkar munu leynt og ljóst vinna að því að skera þannig niður í opinberum rekstri að verkefni og störf víða um land, sem tekið hefur mörg ár að berjast fyrir, munu að óbreyttu flytjast aftur til höfuðborgarsvæðisins. Augljóst er hverjum þeim sem skoðar tölur um afkomu ríkissjóðsins að allir munu þurfa að taka á sig auknar byrðar á næstu árum. Sumar þeirra tillagna sem fjárlagafrumvarpið inniber eru hins vegar svo ósvífin atlaga að landsbyggðinni að ekki er annað hægt en undrast þann viðsnúning sem hefur orðið á viðhorfi ríkisstjórnarflokkanna, sérstaklega þó VG. Nú dugar lítt að segja að hér sé um dæmigerðan málflutning stjórnarandstöðu að ræða.
Þessi viðhorf ganga þvert á stjórnmálaskoðanir fólks og menn hafa ekki látið flokkslínur þagga niður í sér í þessum efnum. Þannig hafa t.d. svæðisfélög VG í Skagafirði og Húnavatnssýslum ályktað í þessa veru, sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum og fleiri mætti upp telja. Sérstakar áhyggjur hefur fólk vítt um land af áformum um að leggja niður sýslumannsembætti, skattstofur, embætti lögreglustjóra og héraðsdómstóla. Engan rökstuðning er að finna fyrir þessum áformum í fjárlagafrumvarpinu. Forkólfar stjórnarflokkanna hafa ekki heldur gefið viðhlítandi skýringar á því hvernig og hverju þetta á að breyta. Því síður hafa verið færð fram haldbær rök fyrir sparnaði af þessum tilfæringum. Ef þessi áform eru skoðuð í samhengi við önnur verkefni sem ríkisstjórnarflokkarnir eru að vinna að kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós varðandi forgangsröðun þeirra. Hér skulu nefnd nokkur dæmi: - Á sama tíma og fækka á sýslumannsembættum og lögreglustjórum liggur fyrir að ríkisstjórnin vinnur að því að fjölga þeim sem þiggja listamannalaun frá skattgreiðendum úr 100 einstaklingum í 133 á ári.
- Á sama tíma og leggja á niður héraðsdómstóla landsbyggðarinnar og flytja til höfuðborgarinnar þá ætlar ríkisstjórnin að leggja 300 milljónir króna í bókaráðstefnu, sem haldin verður í Þýskalandi (hækkar um 75 m.kr. milli áranna 2009-2010).
- Á sama tíma og ríkisstjórnin hefur sagt upp samningi um verklegt nám læknanema við Sjúkrahúsið á Akureyri sem kostar einungis 4 milljónir króna á ári þá fjölgar aðstoðarmönnum ráðherra sífellt. Forsætisráðherra hefur nú þrjá og fjármálaráðherra sömuleiðis.
- Á sama tíma og nota á lífeyri landsmanna til að fjármagna fjölda stórframkvæmda á suðvesturhorni landsins verður ekki boðinn út vegspotti í öðrum landshlutnum á næsta ári og allt viðhald verður í algeru lágmarki.
Tillögur sem fela í sér uppstokkun stjórnkerfisins með aukinni miðstýringu eru til þess eins fallnar að rjúfa tengsl við grunnatvinnuvegi þjóðarinnar og takmarka möguleika landsbyggðarinnar til að nýta auðlindir sínar og mannauð. Að óbreyttu er fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sóknaráætlun gegn landsbyggðinni. Allar hlutlægar athuganir sem gerðar hafa verið sýna að þensla síðustu ára var á höfuðborgarsvæðinu. Þar blés ríkisreksturinn út á sama tíma og lífið á landsbyggðinni gekk sinn vanagang, samdráttur opinberrar þjónustu var þar víðast hvar regla fremur en undantekning.Það er því bæði augljós og sanngjörn krafa skattgreiðenda um allt land að þegar kreppir að sé eðlilegt að mest dragi saman þar sem svigrúmið er fyrir hendi. Í megrun getur ekki verið vænlegt til árangurs að byrja á því að skrapa þar sem enga fitu er að finna. |