Trú

Íslendingar hafa lifað með landinu í aldir og það er ekkert að breytast í þeim efnum.
Töfrahattur Framsóknarflokksins Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Í janúar á þessu ári gerðist sá merkilegi atburður í stjórnmálasögu landsins að minnihlutastjórn VG og Samfylkingar tók við völdum. Framsóknarflokkurinn dró þessa stjórn upp úr töfrahatti sínum og framganga formanns flokksins á þessum tíma var með þeim hætti að stóðst samjöfnuð við hvaða töframann sem var. Aðdáun forsætisráðherra minnihlutastjórnarinnar á galdrakúnstum Framsóknar var heil og óskipt. Svo margir létu blekkjast að næst þegar komið var að galdrastund þurfti þessi óskaríkisstjórn Framsóknarflokksins ekki lengur á stuðningi hans að halda. Viðbrögðum töframannsins í kjölfar kosningaúrslitanna 25. apríl, þegar meirihlutastjórn VG og Samfylkingar tók við völdum, mátti líkja við það að kanínan hefði vaxið töframanninum yfir höfuð.

Í þeim augljósu erfiðleikum sem hið skilgetna afkvæmi töfrabragða Framsóknarflokksins á við að glíma við stjórn efnahagsmála landsins virðist hafa kviknað á ný ábyrgðartilfinning hjá töframanninum.

Nú var komin tími til þess að kippa hlutunum í lag á nýjan leik. Að þessu sinni var töfrabragðið lengur í smíðum og þurfti forysta Framsóknar m.a. að fara til Noregs til að fá efni í töfralausnina. Haft var samband við margfrægan garðyrkjubónda, sem situr á norska stórþinginu, og ekki stóð á góðseminni. Tvö þúsund milljarða og ekkert minna skyldi nú hægt að slá í Noregi - ekkert minna dygði - jafnvel mætti hugsa sér eitthvað til viðbótar ef vel lægi á mönnum. Á sama tíma og heilbrigðisráðherra fékk sig fullsaddan á galdrakúnstum ríkisstjórnarinnar og strunsaði út úr stjórnarráðinu hlupu töfralæknar Framsóknarflokksins inn um dyrnar. Þeir náðu fundi forsætisráðherra og drógu upp úr töfrahattinum norska garðyrkjubóndann með tvö þúsund milljarða lánsloforð.

Eitthvað virtist trú forsætisráðherra á töfralausnir hafa dvínað því hennar viðbrögð voru að leita staðfestingar hjá starfsbróður sínum í Noregi. Hafði hann heyrt um þennan galdur? Jens tilkynnti með Stolti að hann þekki þetta trix mjög vel - það hefði verið margreynt áður í norska stórþinginu en aldrei gengið upp.

Síðustu fréttir af töfrabrögðum Framsóknar eru þær að þeir eru með í smíðum efnahagsáætlun sem á að koma þjóðinni út úr ógöngunum »á einu augabragði«. Í fréttum fjölmiðla á Íslandi segir nú af því að Framsóknarflokkurinn hafi kynnt Norðmönnum drög að nýrri efnahagsáætlun fyrir Ísland og þeir hafi bara tekið þeim áformum vel. Í kjölfar þeirra viðbragða hyggst flokkurinn útfæra töfrabragðið enn frekar en því miður liggur enn ekki fyrir hvenær þetta frábæra útspil verður dregið upp úr hattinum.