Eljusemi

 

Dugnaður og þrautseigja, kjarkur og kraftur, hugvit og hugdirfska

Velkomin á heimasíðuna mína!

Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að líta inn á heimasíðuna. Ég hef alla tíð í mínu stjórnmálavafstri nýtt mér símann og tölvupóstinn til mikilla og góðra samskipta við fólk og sömuleiðis nýtast fundir enn sem komið er ágætlega til skoðanaskipta. Heimasíðan er viðbót við þessi samskipti og ég hvet þig lesandi góður til þess að líta hér inn sem oftast og ef þér þykir ástæða til að senda mér línu með ráðleggingum eða óskum um upplýsingar sem ég mun leitast við að svara eftir bestu getu.
Styrkur og lífsfylling Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Samfélag við aðra manneskju gefur lífinu gildi og er í raun það sem ætti að vera meginverkefni okkar í jarðvistinni.

Í því írafári öllu sem nú hefur geisað um nokkurt skeið hef ég þurft starfa minna vegna að vera meira bundinn við starfsstöðina við Austurvöll en ég hefði kosið. Það er ekki það að þetta sé leiðinlegur vinnustaður heldur hefur þetta högg sem fjármálakerfi landsins haft þær afleiðingar að á höfuðborgarsvæðinu ríkir þannig ástand að um margt minnir á lítið byggðarlag sem tapað hefur lífsafkomu sinni. Miklar tilfinningar brjótast út og í umræðu manna á milli og í fjölmiðlum eru dregnar upp dökkar myndir og svartar.

Nánar...
 
Ágæti lesandi – velkominn á heimasíðuna mina. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að líta inn á heimasíðuna sem ég hef nú endurvakið í tengslum við komandi kosningar til Alþingis í vor.  Mikið er framundan í pólitísku starfi hjá Sjálfstæðisflokknum í NA kjördæmi.  Þann 14. mars nk.  verður prófkjör, sjá islendingur.is, 26. mars hefst landsfundur flokksins, sjá xd.is og loks verður nýtt Alþingi kjörið þann 25. apríl.
Í aðdraganda prófkjörs og kosninga árið 2007 opnaði ég sambærilega heimasíðu þar sem ég setti niður hugleiðingar mínar og áherslur til upplýsingar fyrir þá sem áhuga höfðu.  Viðtökur voru með þeim hætti að mér þykir full ástæða til að endurtaka þetta nú.
Ég hef alla tíð í mínu stjórnmálavafstri nýtt mér símann og tölvupóstinn til mikilla og góðra samskipta við fólk og sömuleiðis nýtast fundir enn sem komið er ágætlega til skoðanaskipta. Heimasíðan er viðbót við þessi samskipti og ég hvet þig lesandi góður til þess að líta hér inn sem oftast og ef þér þykir ástæða til að senda mér línu með ráðleggingum eða óskum um upplýsingar sem ég mun leitast við að svara eftir bestu getu.
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 Næsta > Síðasta >>

Síða 11 af 11