What are standard bank loans Payday loans How large is the loan
 

Kristján Þór

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Til hamingju með áfangann

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
1. febrúar 2013 var skrifað undir samninga um gerð Vaðlaheiðarganga. Langþráðum áfanga í samgöngumálum Norðlendinga og allra landsmanna var þar með náð.
Ég hef þá bjargföstu trú að Vaðlaheiðargöng séu þjóðþrifamál og þó svo að um þessa framkvæmd hafi gustað verulega í sölum Alþingis og víðar, er ég sannfærður um að þegar frá líður muni koma vel í ljós hvaða gildi Vaðlaheiðargöng hafa til eflingar byggða á Mið-Norðurlandi.
Nánar...
 
 

Sókn í stað kyrrstöðu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú þarf að bretta upp ermar, það er verk að vinna. Samfélagið er í vörn, í besta falli kyrrstöðu. Stjórnarstefnan undanfarin ár hefur gert það að verkum að dregið hefur úr þeim krafti og áræðni sem lengi hefur einkennt Íslendinga og knúið öðru fremur áfram hjól samfélagsins. Þessa sér því miður stað út um allt land og það er algjörlega lífsnauðsynlegt að komast upp úr þessu djúpa hjólfari. Við verðum að sækja fram á nýjan leik. Á yfirvegaðan og markvissan hátt. Með breyttri stefnu.

Nánar...
 

Rætt við Bergþóru Þórhallsdóttur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Góð menntun er ein af grunnstoðum hvers samfélags. Ég spurði Bergþóru Þórhallsdóttur, aðstoðarskólastjóra Brekkuskóla á Akureyri, hvaða áherslur hún teldi að Sjálfstæðisflokkurinn í Norðausturkjördæmi ætti að hafa í menntamálum.
 
 

Rætt við Þráinn Lárusson

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Öflug ferðaþjónusta hefur verið byggð upp á Hallormsstað á Héraði. Þar stendur í brúnni Þráinn Lárusson. Ég ræddi við hann m.a. um samskipti stjórnvalda og ferðaþjónustunnar í landinu og hvaða viðhorf hann hefði til áframhaldandi uppbyggingar ferðaþjónustu á Austurlandi. 

Viðtalið er hægt að horfa á hér

 


Síða 2 af 19

Velkomin á heimasíðuna mína!

Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að líta inn á heimasíðuna. Ég hef alla tíð í mínu stjórnmálavafstri nýtt mér símann og tölvupóstinn til mikilla og góðra samskipta við fólk og sömuleiðis nýtast fundir enn sem komið er ágætlega til skoðanaskipta. Heimasíðan er viðbót við þessi samskipti og ég hvet þig lesandi góður til þess að líta hér inn sem oftast og ef þér þykir ástæða til að senda mér línu með ráðleggingum eða óskum um upplýsingar sem ég mun leitast við að svara eftir bestu getu.