Bjartsýni

 

Við höfum alla burði til að vinna okkur út úr þeim vandamálum sem hrjá íslenskt þjóðfélag í dag.

Velkomin á heimasíðuna mína!

Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að líta inn á heimasíðuna. Ég hef alla tíð í mínu stjórnmálavafstri nýtt mér símann og tölvupóstinn til mikilla og góðra samskipta við fólk og sömuleiðis nýtast fundir enn sem komið er ágætlega til skoðanaskipta. Heimasíðan er viðbót við þessi samskipti og ég hvet þig lesandi góður til þess að líta hér inn sem oftast og ef þér þykir ástæða til að senda mér línu með ráðleggingum eða óskum um upplýsingar sem ég mun leitast við að svara eftir bestu getu.
Gleðilegt sumar! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Eftir tvo daga göngum við til kosninga þar sem Austfirðingar, Norðlendingar og aðrir landsmenn kjósa sér forystu til þess að stýra þjóðinni næstu fjögur árin. Ég er sannfærður um að einstaklingsframtakið er sá drifkraftur sem gerir þjóðinni mögulegt að vinna sig hratt og örugglega út úr þeim erfiðleikum sem á hana herja.

Vinstri flokkarnir, sem starfað hafa í skjóli Framsóknarflokksins síðustu mánuði, hafa nú stigið fram og tekið af sér grímuna: Vinstri grænir vilja ekki olíuvinnslu á Drekasvæðinu, þeir vilja ekki álver á Bakka og sjávarútvegsstefna þeirra vegur að atvinnuöryggi þúsunda einstaklinga í kjördæminu. Samfylkingin hefur nú loksins opinberað, þrem dögum fyrir kosningar að hún leggst gegn álveri á Bakka og stefna hennar vinnur að auki gegn sjávarútvegi og landbúnaði í kjördæminu.

Þetta eru ekki þær áherslur sem sjálfstæðir Íslendingar vilja skipa til öndvegis nú á tímum.

Nú ríður á að reisa við atvinnulífið, að hlúa að þeim störfum sem fyrir eru og skapa ný. Við verðum að standa vörð um grunnatvinnuvegi kjördæmisins hvort sem það er landbúnaður, sjávarútvegur eða iðnaður, nýta auðlindir okkar en ekki framselja yfirráð þeirra til annarra ríkja.

Nú er veturinn að baki og við göngum hnarreist mót sumri. Með samhentu og öflugu átaki þessa síðustu daga kosningabaráttunnar getum við tryggt Sjálfstæðisflokknum þann styrk sem til þarf svo við getum gengið hreint til verks við endurreisn efnahagslífsins, okkur öllum til hagsbóta. Ég heiti því að leggja allt mitt af mörkum til þess að svo megi verða og treysti á þinn stuðning.

Kæri lesandi - Ég óska þér og þínum gleðilegs sumars.

Með baráttukveðju

 

Kristján Þór

 
Samskipti Alþingis við fólkið í landinu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Nú þyngir heldur vinnu í aðdraganda kosninganna til Alþingis þann 25. apríl nk. Við frambjóðendur erum að reyna samhliða störfum Alþingis að sinna því mikilvæga hlutverki okkar að hafa samband við íbúa kjördæmis okkar og eiga við þá skoðanaskipti og heyra sjónarmið þeirra til viðfangsefna dagsins.

Ég skal fúslega viðurkenna að ég legg meira upp úr því þessa dagana að eiga samskipti við fólki utan veggja þingsins en innan - og mér þykir með ólíkindum sú afstaða ráðandi stjórnmálaflokka á Alþingi að gefa ekki fólkinu í landinu kost á því að eiga milliliðalaus samskipti við frambjóðendur til Alþingis.

Nánar...
 
Samgöngubætur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Jarðgöng milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar verða að veruleika á þessu ári. Nýlega var síðasta haftið sprengt í burtu og nú tekur við um eins árs vinna við  að snurfusa og lagfæra þessa framtíðar akstursleið milli þessara tveggja byggðarlaga.

Nánar...
 
Sjálfstæðir Íslendingar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudaginn 22. mars s.l. kynnti ég framboð mitt til formanns Sjálfstæðisflokksins og gerði grein fyrir þeim forsendum sem lágu til grundvallar þeirri ákvörðun. Mikill og góður hópur vann frá þeim degi að því að kynna framboð mitt meðal sjálfstæðismanna, jafnt landsfundarfulltrúa og annarra. Fyrir þetta mikla, góða og frábæra starf vil ég þakka.

Sjálfstæðisflokkurinn er og hefur verið stærsti flokkur landsins og það ætlum við að hafa hann áfram. Góð og heilbrigð samkeppni um forystustörfin og drengileg barátta eflir Sjálfstæðisflokkinn og sýnir okkur og sannar hversu öflugur og breiður hann er.

Nánar...
 
Forgangsröðun? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í íslensku samfélagi hlýtur maður að efast um, að forgangsröðun verkefna hjá minnihlutastjórninni sé rétt, þegar mál sem lúta að framtíðarfyrirkomulagi stjórnsýslunnar og að öllum jafnaði tæki langan tíma að ræða eru sett framar málum sem lúta að því að bjarga fyrirtækjum og atvinnulífi landsins og heimilunum.

Fyrir liggur spá Creditinfo um fjöldagjaldþrot fyrirtækja á árinu. Lykilfyrirtæki eru að komast í þrot og má þar nefna ÍAV og einn banki hefur nú fallið á vakt þessarar ríkisstjórnar, þ.e. Straumur Burðarás.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 10 af 11