Verðmæti

Fólkið í landinu, orka í fallvötnum og iðrum jarðar, fiskurinn í sjónum – náttúran.

Velkomin á heimasíðuna mína!

Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að líta inn á heimasíðuna. Ég hef alla tíð í mínu stjórnmálavafstri nýtt mér símann og tölvupóstinn til mikilla og góðra samskipta við fólk og sömuleiðis nýtast fundir enn sem komið er ágætlega til skoðanaskipta. Heimasíðan er viðbót við þessi samskipti og ég hvet þig lesandi góður til þess að líta hér inn sem oftast og ef þér þykir ástæða til að senda mér línu með ráðleggingum eða óskum um upplýsingar sem ég mun leitast við að svara eftir bestu getu.
Uppgjörið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Í kjölfar kosninganna hef ég mikið verið spurður að því hvernig ég hafi það? Hvernig þetta leggist nú allt í mig?
Ég hef það vissulega ágætt, vakna ágætlega kátur á hverjum morgni og fæ oftast góðar fréttir af  mínum nánustu og það er fyrir mestu.
Kosningarnar sl. laugardag marka hins vegar ákveðin þáttaskil í stjórnmálum á Íslandi og kalla á það að sjálfstæðismenn allir endurmeti stöðu sína og flokksins, geri upp við fortíðina og leggi línur fyrir framtíð Sjálfstæðisflokksins.
Nánar...
 
Staðlaður kinnhestur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Það er einkennilegt að fylgjast með stjórnarmyndunarviðræðum VG og Samfylkingar. Einstaka þingmenn væntanlegra stjórnarflokka hlaupa reglubundið út undan sér og gefa samstarfsflokki sínum staðlaðan ESB kinnhest. Fjölmiðlar fylgja málinu eftir og draga upp þá mynd að stjórnarmynunarviðræðurnar reki í strand. Útleggingar fylgja svo um kosti og galla ESB aðildar, hvaða kostir eru í boði o.sfrv.o.s.frv. Hvers vegna í ósköpunum fær þjóðin ekki að heyra af áherslum stjórnarþingmanna af þeim málum sem á öllum brenna í dag og hafa gert allt frá því í október á síðasta ári?

Nánar...
 
Skýrar línur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Úrslit kosninganna í gær eru að mörgu leyti góð. Vil þó fyrst taka fram til að forða misskilningi að ég hefði gjarnan viljað sjá Sjálfstæðisflokkinn fá meira fylgi - en hvað um það þetta er niðurstaðan.

Ég segi þetta góða niðurstöðu að því leytinu til að hún er skýr á margan hátt. Þannig er ljóst að almenningur í landinu vill skipa í öndvegi þeim áherslum sem vinstri flokkarnir tveir standa fyrir, þ.e. Samfylking og VG Í annan stað þá bera niðurstöður kosninganna í sér þau skilaboð til Sjálfstæðisflokksins að honum beri að gaumgæfa vel áherslur sínar og stefnumál áður en hann ber þau fyrir kjósendur sína á nýjan leik. Að þessu leytinu til þá tel ég niðurstöður kosninganna á laugardaginn bæði holla og þarfa lexíu fyrir flokkinn minn sem honum bera að taka alvarlega.

Nánar...
 
Mætið á kjörstað! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Ágætu kjósendur!

Þá er komið að kjördegi. Ég vil hér í þessari lokafærslu á heimasíðuna mína fyrir kosningar, nota tækifærið og hvetja alla til að nýta sér kosningarétt sinn! Um leið minni ég hér á helstu stefnumál mín og annarra sjálfsstæðismanna í Norðausturkjördæmi:

  • Atvinnumál
  • Verðmætasköpun
  • Nýtingu náttúruauðlinda
  • Ríkisfjármál

Þetta eru þau lóð sem ég legg á vogarskálarnar í komandi kosningum !

Með kosningakveðju

Kristján Þór

 
Styrkir við prófkjör Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Í aðdraganda kosninga til Alþingis í apríl 2009 er mikið rætt um fjárstyrki til stjórnmálamanna í prófkjörum sem fram fóru á árinu 2006. Það kom því skemmtilega óvart þegar blaðamaður DV hringdi í mig í dag og spurði mig um fjárstyrki fyrirtækja við síðasta prófkjör mitt. Ég svaraði að bragði að ég hefði enga styrki fengið og virtist það koma honum á óvart. Síðast tók ég þátt í prófkjöri í febrúar síðastliðinn.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 11