- Nóg að gera hjá Jóni...
Komið er fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða. Þar er gerð tilraun til að fullnusta kosningaloforð Steingríms J. Sigfússonar frá því í vor um svokallaðar „frjálsar strandveiðar“. Það kemur í hlut Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra að útfæra frelsið. Það lítur þannig út:
Landinu er skipt í fernt og 3.955 lestum af óslægðum þorski er svo deilt út á milli svæða, tæpum 1.000 tonnum í hvern fjórðung. Þessi afli er tekinn af svokölluðum byggðakvóta. Margar fjölskyldur vítt um land munu því með þessu frumvarpi „frelsaðar“ frá því að þurfa að reiða sig á úthlutun byggðakvótans og geta þar af leiðandi farið að leita sér annarra leiða til að tryggja afkomu sína.