Trú

Íslendingar hafa lifað með landinu í aldir og það er ekkert að breytast í þeim efnum.

Velkomin á heimasíðuna mína!

Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að líta inn á heimasíðuna. Ég hef alla tíð í mínu stjórnmálavafstri nýtt mér símann og tölvupóstinn til mikilla og góðra samskipta við fólk og sömuleiðis nýtast fundir enn sem komið er ágætlega til skoðanaskipta. Heimasíðan er viðbót við þessi samskipti og ég hvet þig lesandi góður til þess að líta hér inn sem oftast og ef þér þykir ástæða til að senda mér línu með ráðleggingum eða óskum um upplýsingar sem ég mun leitast við að svara eftir bestu getu.
Skattmann afturgenginn! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar


Minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna lofaði fyrir kosningar að slá skjaldborg um heimilin í landinu. Framsóknarflokkurinn varði þessa stjórn vantrausti gegn loforðum Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar um ákveðnar aðgerðir í efnahagsmálum – einmitt til stuðnings heimilum landsins.  Svo sem frægt er orðið sviku formenn S og VG öll þessi loforð.

Í trausti þess að kjósendur væru dauðfegnir að vera lausir við hina verklausu ríkisstjórn S og D- og myndu ekki eftir því á hverju stuðningur Framsóknar við minnihlutastjórnina þeirra byggðist, þá endurtóku Steingrímur og Jóhanna sama sönginn fyrir kosningar: Slá skal skjaldborg um heimilin.

Nánar...
 
Að drepast úr hungri eða hroka Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Það er enginn hörgull álitsgjöfum á netinu. Hægur vandi er að sækja sér fróðleik, kynnast skoðunum fólks og kennir þar margra grasa.  Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV, er einn þeirra sem birtir lesendum skoðanir sínar á heimasíðu sinni jonas. is.  Sem sönnum álitsgjafa sæmir þá er honum ekkert mannlegt óviðkomandi og  er skammt stórra högga á milli hjá honum. Ólíkt mörgum starfsbræðrum í bloggheimum,  setur hann fram mál sitt fram með skýrum, einföldum og einbeittum hætti. 
Nánar...
 
88000 opinberir ,,launþegar“ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Á Íslandi eru u.þ.b. 42.000 lífeyrisþegar. Opinberir starfsmenn eru um 46.000. Um 28.000 manns vinna hjá ríkinu og um 18.000 hjá sveitarfélögunum.  Þeir 88.000 einstaklingar sem hér um ræðir eiga mikið undir því að ríkissjóður Íslands sé þokkalega vel stæður. Lífeyrisþegar fá verulegan hluta framfærslu sinnar úr ríkissjóði og opinberir starfsmenn fá þaðan og úr sveitarsjóðum greidd laun. 

Því hefur verið lýst yfir af ríkisstjórn Íslands að ekki muni koma til uppsagna opinberra starfsmanna í tengslum við efnahagstillögur hennar og ekki verði hreyft við launum þeirra starfsmanna ríkisins sem hafa 400 þúsund króna mánaðarlaun eða minna. 

Nánar...
 
Framsal eftirlitsverkefna frá Umhverfisstofnun til heilbrigðiseftirlitssvæða. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Samtök heilbrigðissvæða á Íslandi hafa sent umhverfisráðherra erindi þar sem þess er farið á leit að umhverfisráðuneytið nýti sér fagþekkingu og þá hagkvæmni sem í boði er hjá starfsstöðvum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna.  Hvatt er til þess að ráðuneytið taki af skarið og framselji eftirlit og þvingunarúrræði til þeirra heilbrigðiseftirlitssvæða sem eftir því óska á grunni gildandi laga og reglugerða.  Fyrir liggur að heilbrigðisnefndir í Reykjavík og á Austurlandi

Nánar...
 
Dalai Lama og Hallgrímur Pétursson Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Við Þorsteinn fórum í Hallrímskirkju í dag kl. 15.00.  Tilefnið varð að sækja samtrúarlega friðarstund í Hallgrímskirkju í tilefni komu Dalai Lama til Íslands. 

Mikill fjöldi sótti þessa hátíðlegu stund og komust færri að en vildu. Merkilegt að líta þenna leiðtoga tíbeta augum og var hann ekkert nema auðmýktin að sjá frammi fyrir þeim fjölda fólks sem þarna var samankominn. Frámunalega lélegt það háttalag ríkisstjórnarinnar að sjá ekki sóma sinn í því að taka á móti þessum manni sem er tákngerfingur baráttu smáþjóða fyrir sjálfstæði sínu.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 11