Eyjafjörður hefur alla tíð verið matarkista og árið í ár er þar engin undantekning. Sjófuglinn hefur sjaldan sést jafn innarlega á firðinum og lundastofninn í Grímsey er í miklum vexti.Grímseyingar björguðu enn einu sinni þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum og sáu Vestmannaeyingum fyrir þessum góða mat um nýliðna verslunarmannahelgi. Á 19. öld var skráð sögn um hvernig byggð hófst í Grímsey. Þar segir að lengi hafi engum verið leyft að setjast þar að vegna þess að eyjan hafi þótt svo gagnsöm til eggjatekju og annarra hlunninda. |
|
Nánar...
|
|
Úrtöluraddir og neikvæðni einkenna umræðu dagsins. Bjartsýni og trú á möguleika landsins er á hröðu undanhaldi. Viðfangsefnin þykja svo tröllvaxin, umfangsmikil og erfið að fólki vex í augum að takast á við daginn og ekki síður að velta fyrir sér framtíðarmöguleikum sínum. Í slíku umróti getur verið hollt að leiða hugann að hinum smærri þáttum lífsins sem láta lítið yfir sér en hafa þegar upp er staðið úrslitaáhrif á lífsgæði hvers manns. Þrátt fyrir allt þá gengur lífið sinn vanagang og lífskilyrði okkar í þessu ágæta landi eru með þeim bestu sem gerast. Ég ætla að tína til hér á síðunni í næstu færslum stuttar hugrenningar um hið smáa og góða, og byrja á Grímsey. |
|
Dýrin í Hálsaskógi settu sér reglur sem áttu að gera þeim lífið bærilegra. Eitt dýranna átti sérstaklega erfitt með að virða þessar reglur. Á ögurstundu reynir Mikki refur að hagræða sannleikanum en hin ógleymanlega setning : "Refurinn lýgur" neyðir hann til þess að viðurkenna yfirsjón sína, hann verður uppvís að því að segja ekki rétt frá. Mikki refur iðrast og fellst á að virða reglur Hálsaskógar. Þá loksins fóru öll dýrin að vinna að sameiginlegu marki.
Alþingi hefur nú starfað í rúma tvo mánuði og hefur þingmaðurinn Björn Valur Gíslason í tvígang ( 2 x 2 vikur) tekið sér leyfi frá störfum þingsins og farið til sjós. Réttilega hafa verið gerðar athugasemdir við að varaformaður fjárlaganefndar taki sér leyfi frá því ábyrgðarstarfi sem hann tókst á hendur í vor. |
|
Nánar...
|
|
Það er með ólíkindum hvernig VG gengur fram þessa dagana. Þingflokkur þeirra tekur aðra afstöðu en flokkurinn gaf út fyrir síðustu kosningar og styður nú aðild Íslands að ESB. Formaður VG ber ábyrgð á því sem hann kallaði "glæsilega" niðurstöðu í Icesave samningum Svavars Gestssonar og félaga.
Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið, þrátt fyrir allt sem sagt hefur verið og gert þá ber núverandi ríkisstjórn ábyrgð á niðurstöðu samninga um Icesave. Sama hversu mjög þau reyna að kenna pólitískum andstæðingum um þá gerðu þeir ekki þá þrælasamninga sem nú liggja fyrir við Breta og Hollendinga. Undan samningsniðurstöðunni geta félagarnir Svavar og Steingrímur J. ekki vikist. |
|
Nánar...
|
|
Kjarkleysi á ÞINN kostnað ? |
|
|
|
|
Hvers vegna er bretum og hollendingum ekki gert að sækja rétt sinn á hendur íslenskri þjóð fyrir dómstólum? Hvers vegna á almenningur á Íslandi að taka á sig og afkomendur sína byrðar af skuldum þeirra sem venjulegur íslendingur þekkir ekki nema af myndum í glanstímaritum? Hvers vegna dirfast forsætisráðherra og fjármálaráðherra ásamt fylgifiskum þeirra, að halda því fram að þjóðin eigi ekkert annað val en það að taka á sig hundruð milljarða skuldir? Hvers vegna fær almenningur ekki skýr svör við fyrirspurnum til ríkisstjórnarinnar um að hneppa þjóðina í skuldafjötra og þar með ánauð nýlenduþjóðanna tveggja? Hvers vegna á almenningur að taka á sig ófyrirsjáanlegar byrðar vegna ófara einkafyrirtækis á erlendum vettvangi? Hvers vegna ættu 22 þingmenn og 12 ráðherrar að leggja þennan skuldaklafa á hina 319.000 íslendingana? |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 5 af 11 |