Eljusemi

 

Dugnaður og þrautseigja, kjarkur og kraftur, hugvit og hugdirfska

Velkomin á heimasíðuna mína!

Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að líta inn á heimasíðuna. Ég hef alla tíð í mínu stjórnmálavafstri nýtt mér símann og tölvupóstinn til mikilla og góðra samskipta við fólk og sömuleiðis nýtast fundir enn sem komið er ágætlega til skoðanaskipta. Heimasíðan er viðbót við þessi samskipti og ég hvet þig lesandi góður til þess að líta hér inn sem oftast og ef þér þykir ástæða til að senda mér línu með ráðleggingum eða óskum um upplýsingar sem ég mun leitast við að svara eftir bestu getu.
Af þessu getum við lært Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Þegar íslensku bankarnir voru einkavæddir árið 2003 var um það prýðileg sátt, ekki endilega um hverjir fengju að kaupa heldur að það skyldi selja. Almenn skoðun í samfélaginu var sú að bankar væru betur komnir í einkaeigu en eigu ríkisins með tilheyrandi hættu á pólitískum hrossakaupum og fyrirgreiðslu. Í einkaeigu yrði reksturinn hagkvæmari og nýsköpun og framfarir í þjónustu mundu aukast. Það var mikið álitamál hvernig standa skyldi að einkavæðingu bankanna þegar stjórnmálaflokkarnir voru að sleppa af þeim tökunum. Að mínu mati fór ekki fram nauðsynleg ítarleg umræða um kosti og galla þess að vera með öfluga kjölfestufjárfesta andstætt dreifðri eignaraðild, að áhrifamiklir eigendur gætu verið varasamir tækju þeir eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni bankans og almennings.

Nánar...
 
Aðgerðarleysisfenið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Um þessar mundir ætti venju samkvæmt vertíð að vera að hefjast um allt land og fólk að búa sig undir mikla vinnu og verðmætasköpun.
Nú ber hinsvegar svo við að í sjávarútvegi er verið að undirbúa það að hægja á allri vinnslu og semja við Vinnumálastofnun um að senda verkafólk og sjómenn á atvinnuleysisbætur. Kvótar eru að verða uppurnir og ekkert annað í stöðunni enn að senda fólkið heim, og bæta þannig í þann hóp tugþúsunda manna sem nú þegar þiggja atvinnuleysisbætur. Um allt land er sami tónninn í fólki.

Nánar...
 
VG eða VK? - Villikettir á Alþingi. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Líkt og alþjóð veit þá eiga kettir sér níu líf. Á skömmum starfstíma ríkisstjórnar VG og Samfylkingar hefur gengið hratt á líf villikattanna (VK?) í VG. Formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra virðist telja óhætt að ganga enn nær lífsmarki og lífslíkum ríkisstjórnar sinnar en orðið er.
Í fyrrahaust fór fram í þjóðfélaginu mikil og heit umræða um smölun villifjár í Tálkna, en nú fer fram mikil umræða um smölun alþingiskatta sem hreiðrað hafa um sig innan vébanda VG. Aðaláhugamenn um smölun fjár og katta hafa verið einstakir og ákveðnir þingmenn Samfylkingarinnar með formann sinn í stafni.
Fylgisnatar stefnu Samfylkingarinnar hafa verið þekktir fyrir allt annað en ást á íslenskum landsbúnaði.
Nánar...
 
Þreyttur maður ætti kannski að snúa sér að einhverju öðru... Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Úr Stjórnarsáttmála VG og Samfylkingar, 10. maí 2009: »Þessi ríkisstjórn mun ekki velta vandanum yfir á þá verst settu í samfélaginu, né leggja byrðarnar á börnin okkar með því að skjóta vandanum á frest. Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi
Fjármálaráðherra hefur játað að hann sé orðinn þreyttur á kjaftæði um að ríkisstjórnin uppfylli ekki loforð sín.

Nánar...
 
Krafan er um sanngjarnar og réttlátar aðgerðir Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Standa þarf vörð um hagsmuni almennings og lágmarka tjón heimila landsins í þeim áföllum sem yfir ríða. Ríkisstjórn Íslands er ekki málsvari þess. Þar á bæ hafa menn barist fyrir hækkun skatta og gjalda, sem og niðurskurði á bóta og almannaþjónustu og vegið þannig að afkomu fólks og fyrirtækja. Augljóst er að þörf er á aðhaldi en hinu má ekki gleyma, að aukin verðmæti verða ekki búin til með hærri sköttum eða auknum niðurskurði heldur nýjum sóknarfærum sem skila munu þjóðarbúinu auknum tekjum.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 11